„In nomine domine amen. Var þetta kaup þeirra Ólafs Þorsteinssonar og Þórðar Kolbeinssonar …“
Íslenzkt fornbréfasafn, III, nr. 237, bls. 291. Kaupmannahöfn 1893.
Uppskrift eftir glötuðu bréfi frá 1375. Ólafur Þorsteinsson selur Þórði Kolbeinssyni jörðina Fellsmúla á Landi en Þórður selur Ólafi aftur jarðirnar Höfðabrekku og Kerlingardal í Mýrdal (DI III:291). Á eftir uppskriftinni stendur með sömu hendi: Þetta er nú það bréf síra Jón minn Jónsson sem eg yður í Bæ lofaði að senda og hefur lítið að segja nema svo sem til kynningar lítillar. Vil eg nú fá það aftur sem þér mér hétuð sem var þess íslenska spádóm það þó eð fyrsta. Sigursælir alla tíma og allir yðar. Skrifað með flýti 8. september Anno 1648. y. æ. v. v. Hallgrímur Magnússon. Á versóhlið er utanáskrift til séra Jóns Jónssonar í Fellsmúla. Þar stendur einnig: Hallgrímur Magnússon um Fellsmúlasölu. Þrjár afskriftir voru gerðar af bréfinu og er þetta hin elsta en Árni Magnússon gerði eða lét gera hinar tvær, aðra eftir þessari uppskrift en hina eftir afriti hennar. Árni hafði efasemdir um að bréfið væri ekta, en í Fornbréfasafni segir að sumar upplýsingar séu í samræmi við Höfðabrekkumáldaga frá 1340 og Fellsmúlamáldaga frá 1371. Þar segir útgefandi: eg álít hæpið að dæma bréfið falsbréf.
Hallgrímur Magnússon, blendingsskrift.
Safnmark er skrifað efst á bl. 1r.
Dagsetning upprunalega bréfsins er skrifuð með blýanti efst í vinstra horni bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Leifar innsiglis eru neðst til vinstri á rektóhlið blaðsins en far eftir það er á tveimur stöðum sem hefur myndast við samanbrot.
Bréfið var skrifað á Íslandi 8. september 1648.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.