„… átti í jörðunni Þorkels g … irkjusókn, með öllum þeim … gt hefur að fornu og nýju, … eigandi að, hér í mót gaf …“
Brot af kaupbréfi fyrir Hafgrímsstöðum í Tungusveit og Þorkelsgerði í Selvogi, ritað 1634. Utanáskrift á bakhlið: Kaupbréf fyrir 10 hundruðum í Hafgrímsstöðum í Tungusveit og 8 hundruðum og 40 álnum í Þorkelsgerði í Selvogi. Anno 1634. Þar fyrir neðan hefur Árni Magnússon ritað: Þetta er óefað, hönd Eggerts Jónssonar Magnússonar á Ökrum.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Öll innsigli vantar en sjá má tvö göt fyrir innsiglisþvengi.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.