„Eg, Jó(n?) …“
Efni bréfsins (eða bréfanna) er ekki vitað. Bréfið er óheilt og samanstendur af níu ræmum sem notaðar hafa verið sem innsiglisþvengir. Árni Magnússon fjarlægði þvengina af Bisk. Skalh. Fasc. X, 1 (skrifað 28. júní 1504, prentað í DI VII, bls. 697-699). Þar voru upphaflega 13 innsigli svo ætla má að fjórir þvengir hafa glatast.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.