Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIII,8

Reikningur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r)
Reikningur
Upphaf

Svo orðnir peningar voru gjörðir í milli Odds Bjarnarsonar og Bjarnar Jónssonar. Fjögur hundruð innan mánaðar …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn V. nr. 151, bls. 164-165. Kaupmannahöfn 1899-1902.

Athugasemd

Reikningur milli Odds Bjarnarsonar og Bjarnar Jónssonar, skrifaður fyrir 1458.

Á bakhlið (1v) hefur Árni Magnússon ritað: Innsigla reimar 1458.

Bréfið er óheilt og samanstendur af þremur ræmum sem notaðar hafa verið sem innsiglisþvengir. Árni Magnússon fjarlægði þvengina af AM Dipl. Isl. Fasc. XIV, 13 (skrifað 1458, prentað í DI V, bls. 164) og límdi á pappírsblað.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn (og pappír).
Blaðfjöldi
Eitt blað (um 181 mm x 219 mm).
Ástand
Bréfið er óheilt og samanstendur af þremur ræmum sem notaðar hafa verið sem innsiglisþvengir. Árni Magnússon hefur límt þá á pappírsblað.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Innsigli

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Íslandi 1458 eða fyrr.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu í apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 18. maí 2018.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIII,8
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Reikningur

Lýsigögn