„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Dálkur Einarsson, Þorgeir Böðvarsson, Þórður Bess[ason]. Einar Þórarinsson …“
Íslenzkt fornbréfasafn III. nr. 515, bls. 618-619. Kaupmannahöfn 1896.
Islandske originaldiplomer indtil 1450. s. 127-128. Bréf nr. 102. København 1963.
Dómur sex manna útnefndur af Einari bónda Dálkssyni um erfðamál milli séra Einars Þorvarðssonar og Guðrúnar nokkurrar, skrifaður á áttunda ári ríkis Eiríks Noregskonungs, þ.e. 1396 eða 1397. Á bakhlið (1v) hefur Árni Magnússon ritað: Innsiglis reimar 1490. Bréfið er óheilt og samanstendur af fimm ræmum sem notaðar hafa verið sem innsiglisþvengir. Árni Magnússon fjarlægði þvengina af AM Dipl. Isl. Fasc. XXIX, 26 (skrifað 1490, prentað í DI VI, bls. 663) og límdi á pappírsblað.
Óþekktur skrifari, hugsanlega Einar Þorvarðsson, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.