„Svofelldan vitnisburð ber ég Jón Halldórsson að ég heyrði Ingjald heitinn Narfason lýsa því fyrir Einar heitnum Oddssyni og fleirum öðrum dugandismönnum í Bólstaðarhlíð í Langadal …“
Íslenzkt fornbréfasafn XIV. nr. 413, bls. 582-584. Reykjavík 1944–1949.
Vitnisburður Jóns Halldórssonar um fráfall Solveigar Björnsdóttur og fólks hennar í sóttinni miklu, dags. 22. febrúar 1567. Á bakhlið (1v) er ritað með hendi Árna Gíslasonar á Hlíðarenda: Vitnisburður um manndauða í sóttinni, Solveigar og hennar fólks. Eftirrit er í AM Apogr. Dipl. Isl. 1059.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Göt fyrir tvö innsigli á bréfinu en innsiglin og þvengirnir eru glataðir.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.