„Það gjörum vér Magnús prestur Magnússon, Þórarinn Gíslason og Hallur Oddsson góðum mönnum kunnigt með þessu voru opnu bréfi …“
Íslenzkt fornbréfasafn XIV. nr. 8, bls. 8. Reykjavík 1944–1949.
Árni Gíslason og Guðrún Þorleifsdóttir kvitta hvort annað um öll þeirra skipti, dags. 24. ágúst 1562. Magnús prestur Magnússon, Þórarinn Gíslason og Hallur Oddsson votta. Á bakhlið (1v) er ritað: Kvittunarbréf Árna og Guðrúnur um þeirra kaupskap. Eftirrit (ágrip) er í AM Apogr. Dipl. Isl. 1029.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Eitt innsigli er fyrir bréfinu (Magnúsar Magnússonar) en þau hafa upphaflega verið þrjú.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.