„Öllum góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra Tómas Jónsson, Jón Eireksson, Guðni Þórarinsson, Ólafur Jónsson, Jón Helgason, Björn Arnórsson svarnir lögréttumenn …“
„… með vorum innsiglum fyrir þetta dómbréf hvert er skrifað var á sama ári degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 429, bl. 512-513. Reykjavík 1909-1913.
Dómur sex manna útnefndur af Jóni Hallssyni konungs umboðsmanni í Rangárþingi um kærur síra Jóns Einarssonar til Eiríks Torfasonar og bræðra hans í umboði Þórunnar Einarsdóttur systur sinnar um þá peninga, er átt hafði Jón Torfason heitinn og honum voru til erfða fallnir eftir barn sitt skilgetið (DI IX:512).
Skrifari er óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Innsigli er ekki varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Hvoli.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.