„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendum vér Jón Eireksson, Jón Helgason, Steinn Þorgeirsson, Skúli Tómasson, Guðmundur Guðmundsson og Björn Arnórsson …“
„… Árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð tuttugu og fimm ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 242, bl. 268-269. Reykjavík 1909-1913
Dómur útnefndur af Erlendi Þorvarðssyni lögmanni um kærur Péturs Loptssonar til Eyjólfs Einarssonar vegna Sigríðar Þorsteinsdóttur kvinnu Péturs um þann arf er fallið hafði eftir Ragnheiði Eireksdóttur heitina (DI IX:268). Fyrir ofan bréfið votta Sæmundur Símonarson og Jón Jónsson að þeir hafi lesið yfir frumbréfið með ósködduðum innsiglum. Frumbréfið er ekki varðveitt
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með yngri hendi: „Domur vppa xl ͨ hia eyolffe Einarssyni“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Annað innsiglið er varðveitt og hinn innsiglisþvengurinn hangir einnig við bréfið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Frumbréfið var skrifað á Öxarárþingi 1. júlí 1525 en transskriptarbréfið var skrifað í Ytri-Djúpadal í Eyjafirði 30. ágúst sama ár.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.