Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,19

Borgunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Borgunarbréf.
Upphaf

Það gjöri ek Jón Magnússon góðum mönnum viturlegt …

Niðurlag

… áre eftir guðs burð, þúsund fimmhundruð tuttugu og fjögur ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 221, bl. 249-250. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Jón Magnússon lýsir yfir að hann gengur í borgun um sex tigi hundraða sem Jón Hallsson á að hafa til kaups við Guðrúnu Finnbogadóttur. Jón lýsti þessu yfir í vitni Einars ábóta og síra Finnboga á Munkaþverá (DI IX:249).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (82 mm x 145 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 65 mm x 125 mm
  • Línufjöldi er 11.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með yngri hendi: „Bref j borgan geingid“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Innsiglið er ekki varðveitt en innsiglisþvengurinn hangir við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Munkaþverá 18. eða 25. nóvember 1524.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 17. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,19
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Borgunarbréf.

Lýsigögn