„Vér bróðir Ögmundur með guðs náð, biskup í Skáholti, gjörum góðum mönnum kunnigt …“
„… fyrir þetta gjörningabréf skrifað í sama stað, degi síðar en fyrr segir, anno domini þúsund fimmhundruð og tuttugu og þrjú ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 210, bl. 236-237. Reykjavík 1909-1913
Ögmundur biskup í Skálholti fær og aftur leggur Birni Þorleifssyni bónda þá peninga sem honum höfðu til erfða fallið eftir Jón dan föðurbróður sinn. Gerningsvottar voru Jón Eireksson, Ólfur Guðmundsson bóndi og Jón Björnsson (DI IX:236-237).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með yngri hendi: „Biskups ogmundar Brief þar sem hann fær Birni Þorleifssyni afftur Eigner þær er Jon Dan atte“.
Á tveimur innsiglisþvengjum eru leifar af skrift úr bréfi; það sem hægt er að lesa af því er prentað í Íslenzku fornbréfasafni IX. bl. 237.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).
Öll fjögur innsiglin eru varðveitt en tvö nokkuð skert.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Reykhólum 6. september 1524.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.