„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda Jón Magnússon, Jón Þórðarson, Vigfús Þórðarson, Jón Ólafsson, Brandur Guðmundsson, Snæbjörn Gíslason, Ásmundur Clemensson, Guðmundur Guðmundsson, Brandur Ólafsson, Sigurður Ívarsson, Þórður Þorsteinsson og Salamon Einarsson svarnir lögréttumenn …“
„… með vorum fyrrgreindra dómsmanna innsiglum fyrir þetta dómsbréf skrifað í sama stað og ári degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 123, bl. 148-151. Reykjavík 1909-1913
Tylftardómur útnefndur á Öxarárþingi af Hannesi Eggertssyni hirðstjóra um Sveinsstaðareið Teits Þorleifssonar bónda og átján fylgjara hans, högg þeirra og slög, orð og atvik, svo og skot og skemmd, er Grímur Jónsson veitti Teiti á þeim fundi (DI IX:148). Á eftir bréfinu fylgja þrír vitnisburðir, tveir eru transskript og samtíða dómnum, annar frá Erlendi Þorvarðssyni og hinn frá Hannesi Eggertssyni. Þriðji er yngri en þar vitna um lestur bréfsins Þorsteinn Þorleifsson, Jón Björnsson, Bjarni Torfason, Ólafur Narfason, Pétur Arason og Jón Loptsson.
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með tveimur höndum „þetta er domur teizt bonda þolleifssonar vm Sueinstada rett“ og „Transscritpum nockurra brefa um Sveinstadar fund 1523. giort 1527“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Frumbréfið var gert á Öxárárþingi 30. júní 1523 en transskriptið í Skálholti 13. júlí 1527.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.