„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendum vér bróðir Helgi með guðs náð ábóti í Viðey, Narfi Sigurðsson, Jón Magnússon, Hákon Björgólfsson, Jón Arason, Þórhallur Einarsson, Snæbjörn Gíslason, Oddur Þorkelsson, Grímur Kárason, Runólfur Höskuldsson, Jón Sigurðsson og Jón Þórðarson kveðju …“
„… innsigli fyrir þetta samþykktarbréf skrifað í Viðey feria kuínta octauas pendecostes á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 118, bl. 139-140. Reykjavík 1909-1913
Tylftardómur útnefndur af Ögmundi biksupi í Skálholti og Erlendi Þorvarðssyni lögmanni sunnan og austan á Íslandi um ágreining milli Hannesar Eggertssonar og Týls Péturssonar um hirðstjórn yfir landinu og dæma þeir hirðstjórabréf það, er Hannes hafði af konungi haft, myndugt (DI IX:139).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „domr vm adtekt tils petrssonar“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).
Aldrei hafa verið fleiri en sjö innsigli og eru öll nema eitt varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Viðey 28. maí 1523.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.