Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,1

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda bróðir Helgi með guðs náð ábóti af Viðey, Jón Héðinsson ráðsmann í Skálholti, Gísli Jónsson officialis, Snorri Hjálmsson kirkjuprestur, Jón Einarsson, Þorleifur Eireksson, Jón Gíslason, Guðmundur Steinsson, Jón Árnason, Jón Guttormsson, Sæmundur Árnason og Jón Gíslason kveðju guðs og sína …

Niðurlag

… fyrrgreindra manna innsiglum, mörgum góðum mönnum lærðum og leikum nærveröndum, og með oss samþykkindum. Skrifað í sama stað, degi og ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 112, bl. 131-134. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Dómur tólf klerka, útnefndur af Ögmundi biskupi í Skálholti um kærur hans til síra Jóns Arasonar og er Jón fundinn sekur í öllum liðum (DI IX:131).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (195 mm x 295 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 165 mm x 240 mm
  • Línufjöldi er 31.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með yngri hendi „Reykia domur Um Sakargiptir Biskupz Øgmundar a mote Sera Jone Arasyne“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Allir tólf innsiglisþvengir hanga við bréfið en ekkert innsigli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Reykjum á Skeiðum 16. febrúar 1523.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,1
  • Efnisorð
  • Dómar
    Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn