Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,18

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra, senda Þorkell Ögmundsson, Þorgrímur Stullason, Þorvaldur Jónsson, Þorsteinn Gunnlaugsson, Jón Jherunson [líklega Jörundsson] og Árni Jónsson, kveðju guðs og sína …

Niðurlag

… og til sanninda hér um settum vér fyrr nefndir menn vor innsigli fyrir þetta bréf skrifað í sama stað og ári sem fyrr segir

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 95, bl. 112-113. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Vitnisburður um að síra Sigmundur Guðmundsson og Kristín Þórarinsdóttir, móðir hans, hafi handsalað að hvort þeirra skal eiga jörðina Hlíð er liggur á Langanesi meðan annað þeirra lifir. Einnig að Kristín hafi fest þann bókareið að hún hefði ekki meiri peninga úr föðurgarði en bréfið greinir. (DI IX:112).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110 mm x 180 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 90 mm x 155 mm
  • Línufjöldi er 16.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Tvö af fjórum innsiglum eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Svalbarði á Langanesi 21. september 1522.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn