Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,16

Vitnisburður um ættleiðingu. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburður um ættleiðingu.
Upphaf

Það gjörum vér Tómas Eireksson, Þorsteinn Gunnarsson prestar, Grímur Jónsson, Einar Einarsson leikmenn góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… er skrifað var í sama stað og fyrr segir, fimmtudaginn í páskaviku, árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð fjörutíu og eitt.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 79, bl. 94-95. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Vitnisburðarbréf að Jón Arason prestur ættleiddi fjögur börn sín sem hann átti með fylgikonu sinni, Helgu Sigurðardóttur: Ara, Magnús, Björn og Þórunni, og skyldi Þórunn taka jafnháan hlut við bræður sína (DI IX:94).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (105 mm x 205 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 70 mm x 180 mm
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með svipaðri hendi og bréfið: „ættleidingar bref Sira Biarnar Jonssonar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Tvö af fjórum innsiglum eru varðveitt og tveir innsiglisþvengir að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Ættleiðingin varð á Hólum 29. maí 1522 en bréfið var skrifað á sama stað 21. apríl 1541.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn