Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,12

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Jón prestur Arason og Hallur prestur Ásgrímsson, Magnús Árnason og Magnús Björnsson góðum mönnum …

Niðurlag

… í Eyjafirði föstudaginn næstan eftir geisladag, árum eftir guðs burð, þúsund fimm hundruð tuttugu og tvö ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 55, bl. 65-66. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Tveir prestar og tveir leikmenn vitna að þeir hafa lesið, transkriberað og vottað máldaga Miklagarðskirkju í Eyjafirði eftir máldagabók Ólafs biskups Rögnvaldssonar (DI IX:65).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (90 mm x 210 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 60 mm x 170 mm
  • Línufjöldi er 16.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).

Innsigli

Allir innsiglisþvengir hanga við bréfið en aðeins eitt innsigli er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Miklagarði í Eyjafirði 17. janúar 1522.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn