„Það gjöri eg Bergur Tómasson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …“
„… skrifað var í Skógi í Miðdölum, krossmessu um haustið, þá liðið var frá guðsburð þúsund fimmhundruð og tuttugu og eitt ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 610, bl. 825-826. Reykjavík 1906-1913
Þórkatla Árnadóttir geldur og fær Jóni Dagstyggssyni, syni sínum, í sín þjónustulaun allan þann part í jörðinni Hlíð í Kollafirði, er Árna syni hennar bar til erfða eftir Dagstygg Jónsson föður sin, en hún hafði haft fyrir Árna þar til hann lést og Jón unnið hjá henni kauplaust í níu ár, frá því að faðir hans lést (DI VIII:825).
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Innsiglisþvengurinn hangir við bréfið en ekkert innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Skógi í Miðdölum 14. september 1521.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.