Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,7

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörir eg Jón Eyjólfsson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… á miðvikudaginn næsta eftir kyndilmessu, þá liðið var frá guðs burði þúsund fimmhundruð og tuttugu og eitt ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 583, bl. 773. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður um kaup Sæmundar Jónssonar og Sigmundar Guðmundssonar á jörðinni Brú á Jökuldal og parti úr Sólheimum í Mýrdal með samþykki Hólmfríðar Bjarnadóttur (DI VIII:773).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (60 mm x 200 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 35 mm x 70 mm
  • Línufjöldi er 6.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).

Innsigli

Innsiglið er varðveitt en aðeins skert.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Gjörningurinn varð á Hoffelli í Hornafirði en bréfið var skrifað á Sævarlandi í Þistilfirði 6. febrúar 1521.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn