„Það gjörir eg Hallur prestur Ásgrímsson góðum mönnum kunnigt að eg var þar …“
„… að þér gjörið síra Jóni mínum góð skipti svo hann mætti við yður öllum góðum skiptum halda.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 518, bl. 676-677. Reykjavík 1906-1913
Bréf Halls Ásgrímssonar prests um að þau Ólafur Sigfússon og Guðrún Vigfúsdóttir kona hans hafi gefið síra Jóni Ólafssyni syni sínum umboð með öllum sínum fjám að selja, býta, skikka og skipta, einkum að selja Eyjólfi Gíslasyni bónda fyrstum manna fyrir svo gott verð, sem aðrir bjóða best, en tilskilið styrk Eyjólfs til þess að heimta arf eftir þá bræður Ólafs, síra Hall og Pétur Sigfússonu (DI VIII:676).
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Innsiglið er ekki varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Dómurinn var gerður á Upsum í Svarfaðardal 2. janúar 1519.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.