„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda bróðir Narfi með guðs náð, ábóti á Helgafelli, Grímur Snorrason officialis, Helgi Jónsson, Þorgils Nikulásson, Greipur Jónsson og Hallur Ögmundsson klerkar Skálholtsbiskupsdæmis, Eirekur Þorsteinsson, Brandur Einarsson, Eyjólfur Gíslason, Hrafn Guðmundsson, Jón Árnason og Halldór Þorgeirsson lögréttumenn …“
„… Samþykkti þennan vorn dóm biskupinn og lögmaðurinn og settu sín innsigli með vorum fyrrnefndra dómsmanna innsiglum fyrir þetta dómsbréf hvert er skrifað var í sama stað og ári tveim dögum síðar en fyrr sagði.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 484, bl. 634-637. Reykjavík 1906-1913
Dómur sex klerka og sex lögréttumanna, útnefndur af Stepháni biskupi í Skálholti og Vigfúsi Erlendssyni lögmanni, um kærur Jóns Eiríkssonar prests til Jóns Einarssonar murta fyrir uppbrot, misþyrming og margt fleira. Jón murti er fundinn sekur af dómnum í öllum greinum (DI VIII:634).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Domr vm Jon Einarsson murta og sira Jon Eireksson“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (520 mm x 420 mm x 20 mm).
Sjö innsigli af tólf eru varðveitt, sum óheil, og tveir innsiglisþvengir að auki.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Ögri 22. ágúst 1517.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.