Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,16

Transskriptarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Transskriptarbréf.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda herra Stephán með guðs náð biskup í Skálholti, Vigfús Erlendsson, lögmann yfir allt Ísland, bróðir Ögmundur með sannri náð ábóti í Viðey, Helgi Jónsson, Þórður Guðmundsson, Pétur Mikelsson, Þorleifur Eireksson og Þorlákur Landbjartsson kennimenn Skálholtsbiskupdæmis, Narfi Sigurðsson, Jón Hallsson, Brandur Einarsson, Jón Magnússon, Ólafur Ásbjarnarson, Arnbjörn Einarsson og Ólafur Jónsson svarnir lögréttumenn …

Niðurlag

… á Reykhólum laugardaginn næsta fyrir krossmessu um haustið, árum eftir guðs burð þúsdund og fimmhundruð og átján ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 463, bl. 604-606. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Transskript á AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,14 og AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,15 ásamt vitnisburði og vottun þeirra Páls Jónssonar, Hafliða Skúlasonar, Jóns Guðmundssonar, Eyvindar Guðmundssonar og Þorsteins Ketilssonar sem setja sín innsigli fyrir (DI VIII:604).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (205 mm x 290 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 165 mm x 255 mm
  • Línufjöldi er 32.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „bref vm skulldaferli hans kruko og biarnar þorleifssonar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Af fimm innsiglum er eitt varðveitt en allir innsiglisþvengir hanga við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Frumbréfið var skrifað í Skálholti 18. febrúar 1517 en þetta bréf var skrifað á Reykhólum 11. september 1518.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,16
  • Efnisorð
  • Dómar
    Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn