„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda herra Stephán með guðs náð biskup í Skálholti, Vigfús Erlendsson, lögmann yfir allt Ísland, bróðir Ögmundur með sannri náð ábóti í Viðey, Helgi Jónsson, Þórður Guðmundsson, Pétur Mikelsson, Þorleifur Eireksson og Þorlákur Landbjartsson kennimenn Skálholtsbiskupdæmis, Narfi Sigurðsson, Jón Hallsson, Brandur Einarsson, Jón Magnússon, Ólafur Ásbjarnarson, Arnbjörn Einarsson og Ólafur Jónsson svarnir lögréttumenn …“
„… á Reykhólum laugardaginn næsta fyrir krossmessu um haustið, árum eftir guðs burð þúsdund og fimmhundruð og átján ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 463, bl. 604-606. Reykjavík 1906-1913
Transskript á AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,14 og AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,15 ásamt vitnisburði og vottun þeirra Páls Jónssonar, Hafliða Skúlasonar, Jóns Guðmundssonar, Eyvindar Guðmundssonar og Þorsteins Ketilssonar sem setja sín innsigli fyrir (DI VIII:604).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „bref vm skulldaferli hans kruko og biarnar þorleifssonar“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).
Af fimm innsiglum er eitt varðveitt en allir innsiglisþvengir hanga við bréfið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Frumbréfið var skrifað í Skálholti 18. febrúar 1517 en þetta bréf var skrifað á Reykhólum 11. september 1518.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.