„Öllum þeim mönnum sem þetta bréf eður heyra [svo] senda Stephán með guðs náð biskup í Skálholti, Vigfús Erlendsson, lögmann yfir allt Ísland, bróðir Ögmundur með sannri náð ábóti í Viðey, Helgi Jónsson, Pétur Mikelsson, Þórður Guðmundsson, Þorleifur Eireksson og Þorlákur Landbjartsson kennimenn Skálholtsbiskupdæmis, Narfi Sigurðsson, Jón Hallsson, Brandur Einarsson, Jón Magnússon, Ólafur Ásbjarnarson, Arnbjörn Einarsson og Ólafur Jónsson svarnir lögréttumenn …“
„… Og til sanninda hér um settu biskupinn og lögmaðurinn sín innsigli með vorum fyrrgreindra manna innsiglum fyrir þetta dómsbréf og úrskurðar, skrifað í sama stað, degi og ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 463, bl. 604-606. Reykjavík 1906-1913
Dómur Stepháns biskups og Vigfúsar Erlendssonar lögmanns um það að Björn Þorleifsson hafi löglega greitt skuld sína við Hans Kruko og hústrú Sunnifu í hönd Pétri Pálssyni presti, sendiboða Gottskálks biskups, og sé hann við hana skilinn, en Björn Guðnason hefur haldið þessum peningum ranglega, og dæmdist hann til að standa skil á fjánum og þola sektir, sem bréfið hermir (DI VIII:604).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vm skulldaskipte uid hans kruko“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).
Aldrei hafa verið fleiri en fjögur innsigli fyrir bréfinu en þau eru öll varðveitt, öll í góðu ásigkomulagi. Innsigli biskups er nokkuð stærra en hin, um 50 mm í þvermál.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Skálholti 18. febrúar 1517.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.