„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Pétur Loftsson, Einar Brynjólfsson, Gísli Hákonarson, Þorsteinn Þorláksson, Sæmundur Símonarson, Höskuldur Rúnólfsson, Þorvarður Guðmundsson, Jón Sigurðsson, Gunnsteinn Oddsson, Sigfús Einarsson, Björn Ingimundarson og Sigurður Finnbogason …“
„… miðvikudaginn næstan eftir Marteinsmessu á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 457, bl. 598-599. Reykjavík 1906-1913
Tylftardómur útnefndur af Jóni Ásgrímssyni, konungs umboðsmanni í Vaðlaþingi, um kaup Sturlu Magnússonar af Katli Þorsteinssyni á jörðinni Syðragarði í Dýrafirði (DI VIII:598).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Domr er dæmdur war j eyafirde vm gard“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).
Allir tólf innsiglisþvengir hanga við bréfið og fimm innsigli, nokkuð heilleg.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Dómurinn var gerður í Spjaldhaga 4. nóvember 1516 en bréfið var skrifað á Möðruvöllum 12. nóvember sama ár.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.