Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,4

Transskriptarbréf ásamt transskriptarvottorði um eið Jóns Sigmundssonar. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Transskriptarbréf ásamt transskriptarvottorði um eið Jóns Sigmundssonar.
Upphaf

Vér Stephán með guðs náð biskp í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt með þessu mínu …

Niðurlag

… á Þingeyrum í Vatnsdal mánudaginn næstan eftir hvítasunnu árum eftir Guðs burð þúsund fimmhundruð og sextíu.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 452 B og C II, bl. 591-594. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Transskript af eiði Jóns lögmanns Sigmundssonar unninn fyrir Stepháni biskupi um bót og betran og hlýðni við heilaga kirkju (DI VIII:591).

Fyrir neðan eiðinn hafa Bjarni Arason prestur, Þórarinn Gíslason, Jón Guðmundsson og Ari Þormóðsson lýst því yfir að þeir hafa lesið yfir frumbréfið með innsiglum.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (135 mm x 230 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 125 mm x 215 mm
  • Línufjöldi er 20.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Eijdr Jons Sigmundssonar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Af fjórum innsiglum eru tvö varðveitt, annað óheilt, og innsiglisþvengirnir af hinum tveimur hanga við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Eiðurinn var gerður 1516 en þetta bréf var skrifað á Þingeyrum 10. júní 1560.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,4
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn