Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,2

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Það geri eg Þorvaldur Helgason góðum mönnum viturligt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… fyrir þetta bréf skrifað á Staðarhóli í Saurbæ föstudaginn í attu viku sumars árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og sextán ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 448, bl. 585-586. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Halldór Þorvaldsson selur Halldóri presti Tyrfingssyni, með samþykki og upplagi Valgerðar Ljótsdóttur konu sinnar, hálfa jörðina Hvammsdal í Saurbæ fyrir lausafé með þeim greinum er bréfið hermir (DI VIII:585).

Vottar að bréfinu eru Ögmundur Tyrfingsson, Hallvarður Eiríksson og Ormur Guðmundsson sem setja sín innsigli fyrir.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (95 mm x 270 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 70 mm x 235 mm
  • Línufjöldi er 11.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Tvö innsigli eru varðveitt og þrír innsiglisþvengir að auki hanga við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Staðarhóli í Saurbæ 30. maí 1516.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn