Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,16

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjöri ek Pétur Sigfússon góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …

Niðurlag

… laugardaginn í páskaviku, árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og fjórtán ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 371, bl. 482-483. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður að Halldór Sigmundsson hefði gefið Sumarliða syni sínum jörðina Meiragarð í Dýrafirði til æfinlegrar eignar (DI VIII:482).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (65 mm x 220 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 50 mm x 175 mm
  • Línufjöldi er 8.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vitnisburdar bref peturs sigfussonar vm gard j dyrafirdi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).

Innsigli

Innsigli Péturs er varðveitt en aðeins skert.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Hrauni í Keldudal 22. apríl 1514.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn