„Ek Jón prestur Eireksson prófastur og almennilegur dómari í millum Grindur í Steingrímsfirði og Hestfjarðar í Ísafirði …“
„… þetta kvittunarbréf skrifað í Vatnsfirði in festo leonardj confessoris, anno domini þúsund fimmhundruð og fjórtán.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 401, bl. 521-522. Reykjavík 1906-1913
Jón prestur Eiríksson lýsir því að hann hafi leyst Þorbjörn bónda Jónsson af hórdómsbroti með Guðrúnu Gunnlaugsdóttur, sett honum skriptir, og fullar fésektir upp borið kirkjunnar vegna, og kvittar þau bæði (DI VIII:521).
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).
Innsigli Jóns er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Vatnsfirði 6. nóvember 1514.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.