„Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arnór Finnsson, Þorleifur Örnólfsson, Jón Narfason, Tómas Oddsson lögréttumenn, Narfi Jónsson, Jón Einarsson, Einar Þorleifsson, Erlingur Jónsson, Snorri Helgason, Ásgrímur Ásgrímsson, Jón Einarsson og Sigurður Helgason …“
„… þetta transskriptarbréf hvert er skrifað var í sama stað, Ögri, laugardaginn í tempurviku um haustið, ári síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 386, bl. 497-502. Reykjavík 1906-1913
Tylftardómur útnefndur af Jóni Sigmundssyni lögmanni eftir konungsboði, um aðtöku Vatnsfjarðar og annarra óðala fyrir Birni Guðnasyni, og hverju þeir séu sekir, sem ekki vilja konungsbréf halda (DI VIII:497). Frumritað transskript af AM Apogr. 3881. Ólafur Guðmundsson, Bjarni Narfason, Játgeir Helgason, Ólafur Konráðsson, Jón Sighvatssson og Guðmundur Sigurðsson votta transskriptið og setja sín innsigli fyrir.
Skrifari er Björn Guðnason.
Á blaði 1v með tveimur ólíkum höndum: „Domur um at tauku vazfiardar eptir kongsins skipan og hans brefum“ og „hueriu þeir skulo sekir sem ecki wilia kongsbref hallda“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (420 mm x 520 mm x 20 mm).
Fimm af sex innsiglum eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Frumbréfið var skrifað í Vatnsfirði 31. júlí 1514 en transskriptið í Ögri ári síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.