Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,10

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arnór Finnsson, Þorleifur Örnólfsson, Jón Narfason, Tómas Oddsson lögréttumenn, Narfi Jónsson, Jón Einarsson, Einar Þorleifsson, Erlingur Jónsson, Snorri Helgason, Ásgrímur Ásgrímsson, Jón Einarsson og Sigurður Helgason …

Niðurlag

… þetta transskriptarbréf hvert er skrifað var í sama stað, Ögri, laugardaginn í tempurviku um haustið, ári síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 386, bl. 497-502. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Tylftardómur útnefndur af Jóni Sigmundssyni lögmanni eftir konungsboði, um aðtöku Vatnsfjarðar og annarra óðala fyrir Birni Guðnasyni, og hverju þeir séu sekir, sem ekki vilja konungsbréf halda (DI VIII:497).

Frumritað transskript af AM Apogr. 3881. Ólafur Guðmundsson, Bjarni Narfason, Játgeir Helgason, Ólafur Konráðsson, Jón Sighvatssson og Guðmundur Sigurðsson votta transskriptið og setja sín innsigli fyrir.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (250 mm x 395 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 220 mm x 355 mm
  • Línufjöldi er 45.

Skrifarar og skrift

Skrifari er Björn Guðnason.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með tveimur ólíkum höndum: „Domur um at tauku vazfiardar eptir kongsins skipan og hans brefum“ og „hueriu þeir skulo sekir sem ecki wilia kongsbref hallda“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (420 mm x 520 mm x 20 mm).

Innsigli

Fimm af sex innsiglum eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Frumbréfið var skrifað í Vatnsfirði 31. júlí 1514 en transskriptið í Ögri ári síðar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLII,10
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Dómar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn