„Það gjörum vér Koðrán prestur Jónsson, Oddur Þórðarson, Snorri Hafliðason, Endriði Svartsson og Steindór Ólafsson leikmenn …“
„… vor innsigli fyrir þetta kvittunarbréf er gjört var á Reykhólum á Reykjanesi degi og ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 333, bl. 410-411. Reykjavík 1906-1913
Bréf að Björn Þorleifsson hefði goldið Ingveldi Helgadóttur móður sinni jarðirnar Hvallátur og Skáleyjar á Breiðafirði í þau áttatíu hundruð, sem Ingveldi þótti eftir standa í garð Þorleifs Björnssonar, föður Björns, en Ingveldur fær jarðirnar mágum sínum Eyjólfi Gíslasyni og Grími Jónssyni í peninga dætra sinna Helgu og Guðnýjar, og kvittar Björn um greiðsluna (DI VIII:410). Sjá einnig AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,17.
Skrifari er óþekktur.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vitnisburdur um brefsending Biorns Þ. S. til mödur hans Ingvelldar Helgadottur, á skaleyum og Latrum“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).
Þrjú af fimm innsiglum eru varðveitt og einn innsiglisþvengur er fastur við bréfið að auki.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Reykhólum á Reykjanesi 29. september 1512.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.