Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,13

Staðfesting á dóm um landeign Bólstaðar í Steingrímsfirði. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Staðfesting á dóm um landeign Bólstaðar í Steingrímsfirði.
Upphaf

Það gjöri eg Jón Sigmundsson lögmaður norðan og vestan …

Niðurlag

… um haustið árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð og tólf ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 331, bl. 408-409. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Jón Sigmundsson lögmaður staðfestir skilríki og dóm um landeign Bólstaðar í Steingrímsfirði eftir vitnisburð frá Guðmundi Loftssyni (DI VIII:408).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (75 mm x 160 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 55 mm x 135 mm
  • Línufjöldi er 13.

Ástand
Nokkuð um dökka bletti á bréfinu. Brot í skinninu liggur skáhallt niður frá áttundu línu.
Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr(370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsigli Jóns er varðveitt með bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Ásgeirsá 19. september 1512.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 2. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,13
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn