Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLI,5

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum við Brandur Einarsson, Þórður Arnbjarnarson góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… miðvikudaginn næstan fyrir krossmessu um haustið ári síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 292, bl. 354-355. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður að Einar Þórólfsson játaði að hann hefði í umboði Diðriks Pínings tekið tveim lestum skreiðar af Þorleifi Björnssyni í skuldir Solveigar Þorleifsdóttur til konungs og fyrir þá skreið hefði Solveig fengið Þorleifi hálfar Akureyjar til fullrar eignar (DI VIII:354).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (95 mm x 215 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 70 mm x 195 mm
  • Línufjöldi er 13.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vm ackur eyar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli fylgir bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Vitnisburðurinn var gerður í Rifi 27. júní 1511 en bréfið var skrifað á Reykhólum á Reykjanesi 8. september 1512.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 1. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn