„Meðkennist eg Sveinn Þorleifsson í fullu og löglegu umboði …“
„… miðvikudaginn næsta fyrir decollacio Johannis baptiste, Anno domini millesimo .d. decímo.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 271, bl. 327. Reykjavík 1906-1913
Sveinn Þorleifsson staðfestir, í umboði Hans Ranzau hirðstjóra yfir allt Ísland, alþingisdóm frá 3. júlí 1510 (DI VIII:327). Bréfið var upphaflega hengt við AM Dipl. Isl. fasc. XL,10 og er nú geymt í sömu umbúðum.
Skrifari óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Innsiglisþvengur hangir við bréfið en ekki innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Þverá í Laxárdal 28. ágúst 1510.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.