„Það gjörum vér Þorvarður Björnsson, Jón Jónsson, Jón Sigmundsson og Haraldur Steinsson góðum mönnum …“
„… skrifað á Þverá í Laxárdal mánudaginn næstan fyrir Jónsmessu biskups um vorið á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 251, bl. 303-304. Reykjavík 1906-1913
Bréfið hefst á vitnisburði sem gerður er á Héðinshöfða 1547 um lestur bréfsins sem síðan fylgir í transskripti en frumrit þess er ekki til. Þar segir að Eirekur Ívarsson, Hallur Ketilsson, Hans Runk og Jón Antoníusson votti að Halla Kolbeinsdóttir selji Finnboga Jónssyni lögmanni sex hundruð í jörðinni Garði við Mývatn fyrir fjögur hundruð í lausafé, með öðrum greinum. (DI VIII:303).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v með tveimur höndum: „kaupbrief fyrir Gardi uid miuatn“ og „Gards bref“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Þrír innsiglisþvengir eru á bréfinu en ekkert innsigli. Þvengirnir eru skornir úr gömlu handriti og sést skrift á einum og leifar af rauðum upphafsstaf á öðrum.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Transskriptarbréfið er skrifað á Héðinshöfða 1547 en frumritið á Þverá í Laxárdal 22. apríl 1510.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.