„Wij Christiern met guds nade rett arfing til Norigis rige, udvald konung til Danmark …“
„… Under vort signet, Relator Jørgen scriffwed.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 245, bl. 296. Reykjavík 1906-1913
Kristján konungur hinn annar kvittar Vigfús hirðstjóra Erlendsson fyrir þriggja ára afgjaldi á Íslandi (DI VIII:296).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v: „Kuittun Wigfus Ellendssonar. Kong Christian gamle 1509“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli er með bréfinu.
Bréfið var skrifað í Noregi.
Bréfið er skrifað í höllinni á Akurshúsi 15. nóvember 1509
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.