Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,20

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Það gjörum vér Jón Sigmundsson, Sigurður Magnússon, Halldór Sigmundsson, Jón Þorsteinsson og Hálfdan Jónsson …

Niðurlag

… fyrir þetta jarðarkaupsbréf skrifað í Hjarðardal þriðjudaginn í gagndagaviku á sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 175, bl. 208-209. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Ketill Þorsteinsson selur Sturlu bónda Magnússyni jörðina Syðragarð í Dýrafirði fyrir tólf hundruð í lausafé (DI VIII:208).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (85-90 mm x 260 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 60 mm x 210 mm
  • Línufjöldi er 11.

Ástand
Skriftin er á köflum mjög máð og sumir bókstafir næstum horfnir.
Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „kaupbref fyrir gardi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).

Innsigli

Allir fimm innsiglisþvengir eru á bréfinu og þrjú innsigli, nokkuð skert.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað í Hjarðardal 30. maí 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 23. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn