Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,19

Kvittun vegna barneignar fjórmenninga. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittun vegna barneignar fjórmenninga.
Upphaf

Það gjöri eg Grímur prestur Þorsteinsson prófastur í millum Geirhóls [svo] og Langaness …

Niðurlag

… í Holti í Önundarfirði in cena domini. Anno domini þúsund fimmhundruð átta.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 172, bl. 205-206. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Grímur prestur Þorsteinsson afleysir Jón murta Narfason og Dýrunni Þórðardóttur af fyrstu barneign þeirra í fjórmenningsfrændsemi (DI VIII:205).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (65-70 mm x 205 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 52 mm x 170 mm
  • Línufjöldi er 10.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Einn innsiglisþvengur er fastur við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað í Holti í Önundarfirði 20. apríl 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 23. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn