„Það gjörum vér Jón Jónsson, Kláus Guttormsson, Jón Arason og Mattheus Pálsson góðum mönnum …“
„… miðvikudaginn næstan fyrir krossmessu um haustið þá liðið var í frá hingaðburð vors herra Jesú Christi þúsund fimmhundruð og átta ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 197, bl. 238-239. Reykjavík 1906-1913
Vitnisburður fjögurra manna um útgreiðslu Björns Þorleifssonar til Gottskálks biskups á hundrað hundraða skuld til Hans Kurkugh í Noregi, og hafði Krukugh lánað Birni það fé (DI VIII:238).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v með yngri hendi: „Vitnisburdur uppá þad Björn Þ Reid j Vatnzfjord“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið er skrifað á Reykjahólum 13. september 1508.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.