Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,10

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum við Nikulás Kársson og Árni Brandsson góðum mönnum viturligt …

Niðurlag

… mánudaginn næsta fyrir Ambrósíusmessu á enu sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 167, bl. 201-202. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburðarbréf um það að Ingvildur Helgadóttir hafi skilið sér aðra jörð jafngóða eða þá peninga, sem henni líkaði að taka, móti jörðinni Hvítárbakka í Borgarfirði, er hún fékk Einari Björnssyni og Sigurður Daðason varð vitni að (DI VIII:201).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (96 mm x 180 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 75 mm x 165 mm
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (365 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Öll þrjú innsiglin eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Helgafelli í Helgafellssveit 9. nóvember 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 19. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn