„Það gjörum vér Einar með guðs náð, ábóti á Munkaþverá, Eirekur Sumarliðason, Jón Þorvarðsson, Jón Arason, prestar Hólabiskupsdæmis, Jón Ásgrímsson kóngs umboðsmaður í Vöðlaþingi, Pétur Loptsson, Magnús Árnason, og Jón Þorsteinsson leikmenn …“
„… Svo og settum vér Gottskálk með guðs náð biskup á Hólum í Hjaltadal vort innsigli fyrir þetta bréf með fyrrnefndra góðra manna innsiglum.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 206, bl. 246-248. Reykjavík 1906-1913
Sáttarbréf þeirra Vigfúsar og Þorvarðs Erlendssona og Einars Eyjólfssonar, vegna Hólmfríðar Erlendsdóttur, við Grím Pálsson og sonu hans um Möðruvallaeignir (DI VIII:246).
Skrifari óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (515 mm x 420 mm x 20 mm).
Sjö innsigli hafa verið fyrir bréfinu, eitt er varðveitt og þrír innsiglisþvengir að auki eru fastir við bréfið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Sáttin var gerð 17. október 1508 í Miklagarði en bréfið var skrifað á Hólum 28. desember sama ár.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.