„Það gjörum vér Pétur Loftsson, Jón Þorsteinsson, Halldór Sigmundsson, Gunnsteinn Oddsson, Þorvaldur Arason, Árni Oddsson, Finnbogi Jónsson, Brigcius Guðmundsson, Jón Gíslason, Þorsteinn Hjálmsson og Kolbeinn Indriðason …“
„… skrifað á Möðruvöllum í Eyjafirði þrim nóttum eftir Calíxtus messu á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 205, bl. 245-246. Reykjavík 1906-1913
Vitnisburðarbréf um lýsing Gríms Pálssonar, á hvern hátt hann gengi af Möðruvöllum í Eyjafirði, er Gottskálk biskup vildi fá hann til að játa þeim eignum undan sér (DI VIII:245).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v: „bref á millum grims pals sonar og biskups gottskals“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).
Af fimm innsiglum eru tvö á bréfinu, aðeins skert, og þrír innsiglisþvengir að auki.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið er skrifað á Möðruvöllum í Eyjafirði 17. október 1508.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.