Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,4

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Pétur Loftsson, Jón Þorsteinsson, Halldór Sigmundsson, Gunnsteinn Oddsson, Þorvaldur Arason, Árni Oddsson, Finnbogi Jónsson, Brigcius Guðmundsson, Jón Gíslason, Þorsteinn Hjálmsson og Kolbeinn Indriðason …

Niðurlag

… skrifað á Möðruvöllum í Eyjafirði þrim nóttum eftir Calíxtus messu á sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 205, bl. 245-246. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburðarbréf um lýsing Gríms Pálssonar, á hvern hátt hann gengi af Möðruvöllum í Eyjafirði, er Gottskálk biskup vildi fá hann til að játa þeim eignum undan sér (DI VIII:245).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (132 mm x 265 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 90 mm x 225 mm
  • Línufjöldi er 16.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „bref á millum grims pals sonar og biskups gottskals“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Af fimm innsiglum eru tvö á bréfinu, aðeins skert, og þrír innsiglisþvengir að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Möðruvöllum í Eyjafirði 17. október 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 22. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn