Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,24

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Það gjörum vér Ólafur Gunnlaugsson, Jón Koðránsson prestar Skálholtsbiskupsdæmis, Snjólfur Hrafnsson, Jón Sigurðarson, Árni Brandsson leikmenn …

Niðurlag

… á Skriðuklaustri í Fljótsdalshéraði mánudaginn í helgu viku ári síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 109, bl. 119-120. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Þorvarður príor af Skriðuklaustri selur Þorvarði bónda Bjarnasyni jarðirnar Eyvindará og Mýnes á Útmannasveit með fleiri jörðum fyrir jarðirnar Meðalnes og Birnufell í Fellum og aðrar tilgreindar jarðir (DI VIII:119).

Stefán biskup vottar bréfið einnig og setur sitt innsigli fyrir.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (115 mm x 223 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 82 mm x 205 mm
  • Línufjöldi er 18.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Af sex innsiglum er eitt varðveitt en allir innsiglisþvengirnir eru einnig fastir við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Kaupin voru handsöluð á Múla í Skriðdal 30. ágúst 1506 en bréfið var skrifað 29. mars 1507 á Skriðuklaustri.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 19. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn