Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,12

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum við Snjólfur Hrafnsson og Sigurður Daðason góðum mönnum kunnigt með þessu okkru opnu bréfi …

Niðurlag

… fimmtudaginn næsta fyrir Marteinsmessu, árum eftir Guðs burð þúshundruð fimmhundruð og sjö ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 144, bl. 167-168. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður tveggja manna að Hrafn lögmaður Brandsson hafi á Leiðarhólmi úrskurðað löglega ættleiðing Stepháns Loptssonar, en ónýt skjöl Jóns Sigmundssonar (DI VIII:167).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (70 mm x 265 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 55 mm x 240 mm.
  • Línufjöldi er 9.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Vitnisburdur ij manna at þeir hafi verit med hrafni logmanni i leidarholmi“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Annað innsiglið er dottið af en hitt er varðveitt. Innsiglisþvengur þess sem er dottið af er fastur við bréfið og hefur verið skorinn úr eldra handriti.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Eyri í Álftafirði 10. nóvember 1507.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 12. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn