„Það gjörum vér Guðni Jónsson, Þórólfur Ögmundsson, Þorleifur Aunólfsson, Jón Narfason, Tritram Búason, og Snorri Helgason …“
„… í Ögri í Ísafirði á visitacio sancte marie anno domini þúsund fimmhundruð sex.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 103, bl. 114. Reykjavík 1906-1913
Vitnisburður sex manna um að Björn Guðnason hafi staðið síra Grími Þorsteinssyni officialis Skálholtskirkju í Vestfjörðum, reikningsskap Vatnsfjarðarkirkju upp á 120 vetur en eftir reikninginn staðinn hafi Stephán biskup í Skálholti tekið af honum stað þenna löglaust og með ofríki, sett Björn og fólk hans í bann og út af heilögu sakramenti svo að Björn varð að lofa að ganga frá garðinum (DI VIII:114).
Skrifari Björn Guðnason í Ögri.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „quittunar bref vpp a reikning skap vadzfiardar kirkiu“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (293 mm x 370 mm x 20 mm).
Öll sex innsiglin eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Ögri í Ísafirði 2. júlí 1506
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.