Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,26

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Jón Jónsson, Björn Þorgilsson prestur, Jón Þórðarsson, Þorgils Ólafsson, Jón Jónsson, Guðmundur Erlendsson leikmenn …

Niðurlag

… Innsiglum vér þetta dómsbréf skrifað í Reykjaholti sama stað, ári og degi sem fyrr segir.

Athugasemd

Dómur vegna kæru séra Ólafs Gilssonar á hendur Jóni Dagstyggssyni. Jón var fundinn sekur um að hafa sundrað samvistum hjónanna Einars Bjarnasonar og Þorkötlu Árnadóttur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (125-142 mm x 235 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 125 mm x 215 mm.
  • Línufjöldi er 22.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Í umbúðum fylgja einnig fjórar skinnræmur úr handriti.

Innsigli

Fjórir innsiglisþvengir eru fastir við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í bréfinu kemur fram að það var skrifað í Reykholti 7. nóvember 1505.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,26
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Dómar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn