„Það gerum vér Jón Björnsson, Hallur Arnórsson og Jón Jónsson góðum mönnum viturligt …“
„… föstudaginn næsta fyrir Jónsdag Hólabiskups um vorið á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 636, bl. 685. Reykjavík 1903-1907
Kaupbréf sama efnis og AM Dipl. Isl. Fasc XXXVII,11 (DI VII:685).
Skrifari er óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Þrír innsiglisþvengir eru á bréfinu en ekkert innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Glæsibæ í Kræklingahlíð 19. apríl 1504.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.