„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda Þórólfur Ögmundsson, Þorleifur Örnólfsson, Narfi Jónsson, Þorgautur Ólafsson, Snorri Helgason, Jón Helgason og Snorri Jónsson …“
„… Og til sanninda hér um settum vér áðurgreindir menn vor innsigli fyrir þetta dómsbréf skrifað í Holti í Önundarfirði degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 628, bl. 674-676. Reykjavík 1903-1907
Dómur sex manna útnefndur af Birni Guðnasyni sýslumanni milli Geirhóls og Langaness um tíundarhald Einars Sveinssonar í þrenna tólfmánuði, og dæma þar allt fé hans ótíundað fallið undir kóng og biskup (DI VII:674).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v „Domur vm Tijundarhalld Einars Sueinssonar 1504“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli af sex er varðveitt en tveir innsiglisþvengir eru á bréfinu.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í upphafi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Mosvöllum 1. febrúar 1504 en í niðurlagi segir að innsigli hafi verið sett á Holti í Önundarfirði degi síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.